Reginn hf.: Birting grunnlýsingar


Reginn hf., kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 14. júlí 2022, staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Regins, www.reginn.is/fjarfestavefur/. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins að Hagasmára 1 í Kópavogi.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.


Nánari upplýsingar veitir:

Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is – S: 844 4776