Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 28 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 7.500.000 eigin hluti að kaupverði 155.925.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
11.7.2022 13:48:08 1.000.000 20,95 20.950.000
12.7.2022 09:38:36 500.000 20,6 10.300.000
12.7.2022 11:15:10 500.000 20,65 10.325.000
13.7.2022 11:12:30 500.000 20,7 10.350.000
13.7.2022 12:18:53 1.000.000 20,9 20.900.000
14.7.2022 09:54:00 500.000 20,8 10.400.000
14.7.2022 10:40:36 1.000.000 20,8 20.800.000
14.7.2022 10:48:26 500.000 20,8 10.400.000
15.7.2022 13:40:40 2.000.000 20,75 41.500.000
Samtals   7.500.000   155.925.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.

Kvika átti 51.600.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 59.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,223% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.162.740.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is