Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 30 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 7.000.000 eigin hluti að kaupverði 140.800.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
26.7.2022 14:45:55 2.000.000 19,95 39.900.000
27.7.2022 09:51:53 1.000.000 19,95 19.950.000
28.7.2022 10:19:54 1.000.000 20,3 20.300.000
28.7.2022 14:30:30 1.000.000 20,25 20.250.000
29.7.2022 10:42:33 1.000.000 20,2 20.200.000
29.7.2022 14:04:32 1.000.000 20,2 20.200.000
Samtals   7.000.000   140.800.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.

Kvika átti 68.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 75.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,554% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.486.390.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is