Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 30. viku 2022 keypti Síminn hf. 4.500.000 eigin hluti að kaupverði 50.775.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
25.7.202209:371.500.00011,4017.100.000166.113.702
26.7.202214:441.500.00011,2516.875.000167.613.702
27.7.202209:471.500.00011,2016.800.000169.113.702
  4.500.000 50.775.000169.113.702


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 20. júní 2022. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.000 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2023, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 164.613.702 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 169.113.702 eða sem nemur 2,32% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 36.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,49% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 417.750.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.