Í viku 31 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 162.200.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
2.8.2022 | 14:20:34 | 2.000.000 | 20,15 | 40.300.000 |
3.8.2022 | 10:51:00 | 500.000 | 20,15 | 10.075.000 |
3.8.2022 | 10:59:17 | 1.500.000 | 20,15 | 30.225.000 |
4.8.2022 | 11:01:20 | 2.000.000 | 20,25 | 40.500.000 |
5.8.2022 | 10:09:47 | 1.000.000 | 20,5 | 20.500.000 |
5.8.2022 | 15:22:37 | 1.000.000 | 20,6 | 20.600.000 |
Samtals | 8.000.000 | 162.200.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 75.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 83.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,72% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.648.590.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is