Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKNG 40 1.
Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 1.540 m.kr. í flokkana.
Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 1.455 m.kr. að nafnvirði á bilinu 1,89% - 1,99%. Ákveðið var að taka öllum tilboðum, samtals að nafnvirði 1.455 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,99%. Útistandandi fyrir útboð voru 19.693 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 21.148 m.kr. að nafnverði.
Heildartilboð í RVKNG 40 1 voru samtals 85 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 6,7%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum.
Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 16. ágúst 2022.
Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is
Sími: 898-8272