Kvika – MÉLLON hs. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá First North skuldabréfamarkaði á árinu 2018. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 2022 fyrir Kviku – MÉLLON hs.
- Tap sjóðsins á fyrri árshelmingi 2022 nam 15,9 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins var neikvæð sem nemur 33 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30.06.2022 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.
Viðhengi