Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 33 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 173.800.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
16.8.2022 10:43:00 1.000.000 22,3 22.300.000
16.8.2022 14:52:03 1.000.000 22,25 22.250.000
17.8.2022 10:25:56 2.000.000 22,3 44.600.000
18.8.2022 10:57:12 2.000.000 20,25 40.500.000
19.8.2022 09:41:31 1.000.000 22,15 22.150.000
19.8.2022 10:20:21 1.000.000 22 22.000.000
Samtals   8.000.000   173.800.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.

Kvika átti 92.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 100.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,062% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.018.240.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is