Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Samkomulag við Klíníkina Ármúla um stækkun

Reitir hafa gengið til samninga við Klíníkina Ármúla um uppbyggingu á læknamiðstöð í Ármúla 7 og 9. Klíníkin mun áfram leigja hluta Ármúla 9 en stækka starfsemi sína yfir í aðliggjandi byggingar í Ármúla 7, tengibyggingu milli húsanna auk bakhúss.

Eftir stækkunina verður húsnæði Klíníkurinnar um 7.000 m2 að stærð og verður lengd leigusamnings 20 ár frá afhendingu. Leiðir umrædd stækkun til fjárfestingar af hálfu Reita upp á um 2,8 milljarða kr. vegna breytinga á umræddum fasteignum sem dreifist yfir næstu 22 mánuði og  verða fjármagnaðar úr sjóðum félagsins.

Ármúli 7 hefur að mestu verið í skammtímaleigu til ýmissa aðila en tekjuaukning Reita á ársgrunni vegna samningsins við Klíníkina er áætluð um 270 m.kr. og aukning rekstrarhagnaðar um 220 m.kr. Áhrifin munu þó ekki fara að koma fram svo nokkru nemi fyrr en eftir afhendingu Ármúla 7 til Klíníkurinnar á seinni hluta ársins 2024.  

Upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri, á netfanginu gudjon@reitir.is, eða í síma 660-3320.