Vísað er til Kauphallartilkynningar Regins hf., dags. 3. desember 2021, þar sem tilkynnt var um undirritun samnings Regins hf., Haga hf. og KLS eignarhaldsfélags ehf. um áskrift að hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa ehf.
Samningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um m.a. samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 10. júní 2022 var undirrituð sátt á milli Haga hf. og Samkeppniseftirlitsins um skilyrði fyrir kaupunum. Það tilkynnist hér með að viðskiptin eru komin til framkvæmda og Reginn hf. því orðinn hluthafi í Klasa ehf. Stjórn Klasa ehf. er skipuð sex einstaklingum úr hópi hluthafa og þar á meðal eru f.h. Regins Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins hf. og Dagbjört Erla Einarsdóttir, yfirlögfræðingur Regins hf.
Áhrif viðskiptanna á hagnað fyrir skatt hjá félaginu voru 651 millj. kr. og komu þau að fullu fram í virðismati fjárfestingareigna 30. júní 2022.
Ráðgjafar Regins hf. í viðskiptunum voru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf., KPMG og LEX lögmannsstofa.
Nánari upplýsingar:
Helgi S. Gunnarsson - Forstjóri - helgi@reginn.is - s: 512 8900 / 899 6262