Fréttatilkynning frá Eimskip


Vísað er til fréttatilkynningar frá 24. júní 2022 varðandi niðurstöðu Landsréttar sem ákveðið var að vísa til Hæstaréttar, sbr. skýringu 26 í ársreikningi félagsins fyrir árið 2021.

Í dag barst niðurstaða Hæstaréttar sem hafnaði beiðni félagsins um áfrýjun málsins til réttarins og er því þar með lokið.

Með vísan til áður birtra upplýsinga hefur þessi niðurstaða engin áhrif til gjalda eða greiðslu. Málskostnaður fyrir héraðsdómi og Landsrétti var látinn niður falla.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is