Ölgerðin hf.: Margrét Arnardótttir hættir hjá Ölgerðinni


Margrét Arnardóttir, framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar hefur óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu og samið um starfslok sín. Margrét hefur stýrt sviðinu frá árinu 2016 og mörgum stærstu verkefnum fyrirtækisins síðustu ár, nú síðast umfangsmiklum fjárfestingum í húsnæði og vélbúnaði sem stórauka framleiðslugetu fyrirtækisins.

„Tími mikilla umbreytinga er að baki og Ölgerðin er nú allt önnur og öflugri en áður. Við höfum breytt verklagi og framleiðsluferlum, uppfært og innleitt ný kerfi, aukið öryggi starfsfólks í framleiðslu, sett upp nýjar vélar og byggt frá grunni einhvern fjölhæfasta framleiðslusal í heimi.  Við höfum stóraukið framleiðsluna, gert margvíslegar tilraunir með nýjar vörur, aukið gæðin og unnið til fjölmargra verðlauna. Við höfum bætt vinnuaðstöðu og aðbúnað starfsfólks, sem myndar sterka liðsheild á þessum frábæra vinnustað. Ég er þakklát mínu góða samstarfsfólki fyrir undanfarin ár, en fyrir mig er tímabært að snúa mér að nýju verkefni – nú þegar Ölgerðin er reiðubúin að mæta framtíðinni“ segir Margrét.

„Margrét hefur lyft grettistaki í þeim fjölmörgu verkefnum sem hún hefur leitt og stýrt innan Ölgerðarinnar síðustu ár og við erum þakklát fyrir þau góðu verk sem hún hefur skilað innan fyrirtækisins. Kraftur, áhugi og elja hafa einkennt störf hennar og hún skilar góðu búi til eftirmanns síns. Henni fylgja okkar bestu óskir í hverju sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.