REITIR: Kaup á Lambhagavegi 7


Reitir hafa gengið til samninga við Lambhagaveg 7 ehf. um kaup á Lambhagavegi 7 í Reykjavík. Um er að ræða 4.200 fermetra af nýju og vönduðu lagerhúsnæði sem hýsir rekstur Alvotech hf.

Heildarvirði kaupanna er 2.200 m.kr. og verður að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé. Áætlaðar leigutekjur og rekstrarhagnaður á ári nemur um 155 m.kr. en um þurrleigusamning til 16 ára er að ræða.

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana, og samþykki stjórnar Reita fasteignafélags hf. Áætlað er að afhending verði þann 1. október nk.

Upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 og á gudjon@reitir.is