Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 36. viku 2022 keyptu Hagar hf. 1.120.000 eigin hluti fyrir kr. 81.910.000 eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
6.9.2022 13:52 350.000 71,25 24.937.500 7.311.397
8.9.2022 13:40 370.000 74,25 27.472.500 7.681.397
9.9.2022 14:19 400.000 73,75 29.500.000 8.081.397
    1.120.000   81.910.000 8.081.397


Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 2. september 2022, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 1. september 2022.

Hagar hafa keypt samtals 1.120.000 hluti í félaginu sem samsvarar 1,05% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 81.910.000 sem samsvarar 16,38% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 0,71% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.132.676.082.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 106.306.211 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 1. júní 2023, eða fram að aðalfundi félagsins 2022, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995,  5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.