Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 39. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 277.177 eigin hluti að kaupverði 23.991.576 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Reita eftir viðskipti |
26.9.2022 | 15:26 | 77.177 | 88,00 | 6.791.576 | 11.077.177 |
28.9.2022 | 14:29 | 100.000 | 86,00 | 8.600.000 | 11.177.177 |
29.9.2022 | 09:37 | 100.000 | 86,00 | 8.600.000 | 11.277.177 |
Samtals | 277.177 | 23.991.576 | 11.277.177 |
Reitir hafa nú keypt samtals 277.177 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 4,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 23.991.576 kr. sem samsvarar 4,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 11.277.177 eigin hluti, eða um 1,48% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is