Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 40. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.119.668 eigin hluti að kaupverði 101.470.950 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
03.10.2022 | 14:42 | 69.668 | 87,50 | 6.095.950 | 11.346.845 |
04.10.2022 | 09:34 | 200.000 | 90,00 | 18.000.000 | 11.546.845 |
04.10.2022 | 10:23 | 200.000 | 90,50 | 18.100.000 | 11.746.845 |
05.10.2022 | 09:43 | 200.000 | 91,50 | 18.300.000 | 11.946.845 |
06.10.2022 | 10:31 | 250.000 | 91,50 | 22.875.000 | 12.196.845 |
07.10.2022 | 15:04 | 200.000 | 90,50 | 18.100.000 | 12.396.845 |
Samtals | 1.119.668 | 101.470.950 | 12.396.845 |
Reitir hafa nú keypt samtals 1.396.845 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 21,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 125.462.526 kr. sem samsvarar 21,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 12.396.845 eigin hluti, eða um 1,62% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is