Alma íbúðafélag hf.: útgáfa skuldabréfa


Alma íbúðafélag hf.: útgáfa skuldabréfa

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum AL101227 og sölu á nýjum skuldabréfaflokki AL150424 sem gefnir eru út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL101227 er verðtryggður á föstum vöxtum, til 6 ára, en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,07% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar 3.800 m.kr.

Skuldabréfaflokkurinn AL150424 er óverðtryggður með 7% nafnvöxtum og lokagjalddaga 15. apríl 2024. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,02%.

Eignarhaldsfélagið Mata hf. eigandi 57% Langasjávar ehf. móðurfélags Ölmu íbúðafélags hf. keypti 500 m.kr. í skuldabréfaflokknum AL150424.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 26. október 2022 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

ACRO verðbréf hf. hafa umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is