Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 41. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.307.917 eigin hluti að kaupverði 115.104.613 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
10/10/22 | 11:16 | 200.000 | 90,00 | 18.000.000 | 12.596.845 |
10/10/22 | 11:19 | 150.000 | 90,00 | 13.500.000 | 12.746.845 |
10/10/22 | 14:03 | 43 | 89,00 | 3.827 | 12.746.888 |
10/10/22 | 14:52 | 7.874 | 89,00 | 700.786 | 12.754.762 |
11/10/22 | 09:48 | 150.000 | 88,00 | 13.200.000 | 12.904.762 |
11/10/22 | 15:14 | 150.000 | 87,00 | 13.050.000 | 13.054.762 |
13/10/22 | 12:43 | 200.000 | 86,00 | 17.200.000 | 13.254.762 |
13/10/22 | 13:17 | 200.000 | 86,00 | 17.200.000 | 13.454.762 |
14/10/22 | 14:21 | 250.000 | 89,00 | 22.250.000 | 13.704.762 |
Samtals | 1.307.917 | 115.104.613 | 13.704.762 |
Reitir hafa nú keypt samtals 2.704.762 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 41,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 240.567.139 kr. sem samsvarar 41,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 13.704.762 eigin hluti, eða um 1,80% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is