Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 42. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 900.000 eigin hluti að kaupverði 78.500.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
17/10/22 | 11:16 | 200.000 | 88,50 | 17.700.000 | 13.904.762 |
19/10/22 | 13:35 | 200.000 | 88,00 | 17.600.000 | 14.104.762 |
20/10/22 | 10:54 | 100.000 | 87,00 | 8.700.000 | 14.404.762 |
20/10/22 | 10:54 | 200.000 | 87,50 | 17.500.000 | 14.404.762 |
21/10/22 | 13:55 | 200.000 | 85,00 | 17.000.000 | 14.604.762 |
Samtals | 900.000 | 78.500.000 | 14.604.762 |
Reitir hafa nú keypt samtals 3.604.762 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 55,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 319.067.139 kr. sem samsvarar 54,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 14.604.762 eigin hluti, eða um 1,91% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is