Útboð á grænum skuldabréfum 31. október 2022


Orkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum mánudaginn 31. október 2022. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR161126 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði kr. 9.415 milljónir í flokknum.

OR161126 GB er nýr óverðtryggður skuldabréfaflokkur með vaxtagreiðslufyrirkomulagi og ber 7,0% vexti sem greiðast fjórum sinnum á ári fram að lokagjalddaga þann 16. nóvember 2026.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Benedikt K. Magnússon, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516 6100, netfang: Benedikt.Kjartan.Magnusson@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com