Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Breyting á framkvæmdastjórn

Andri Þór Arinbjörnsson, framkvæmdastjóri eignaumsýslusviðs Reita, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu og mun hann hverfa til annarra starfa þann 1. janúar nk.

Andra eru þökkuð einstaklega góð og farsæl störf fyrir Reiti undanfarin 12 ár og er honum óskað alls hins besta á nýjum vettvangi.

Upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 eða á gudjon@reitir.is.