Kvika banki hf.: Birting níu mánaða uppgjörs fimmtudaginn 10. nóvember


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022 á stjórnarfundi fimmtudaginn 10. nóvember og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður að þessu sinni haldinn næsta dag, föstudaginn 11. nóvember kl. 08:30, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Á fundinum mun Marinó Tryggvason forstjóri Kviku fara yfir uppgjör félagsins og helstu þróun á liðnum mánuðum. Þá mun Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi, kynna starfsemi Kviku í Bretlandi með sérstaka áherslu á lánastarfsemi bankans þar í landi sem fram fer undir merkjum Ortus Secured Finance.

Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.