Breytingar í skemmtana- & framkvæmdastjórn Nova


Magnús Árnason, Maggi, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Nova. Maggi hefur starfað sem þjálfari og framkvæmdastjóri Stafrænnar þróunar og verið í Nova liðinu frá 2017.  Samhliða því að Maggi lætur af störfum verða gerðar breytingar á leikskipulagi Nova og fækkun verður í skemmtana- & framkvæmdastjórn. Breytingarnar taka gildi í dag.

Stafræn þróun færist yfir í Tækni, sem framvegis nefnist Tækni & Nýsköpun.
Benedikt Ragnarsson, framkvæmdastjóri Tækni, mun taka við nýju hlutverki innan Nova og verða tækniþróunarstjóri. Staða framkvæmdastjóra Tækni & Nýsköpunar verður auglýst, en Benedikt mun leiða sviðið þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn.

Fjármál munu framvegis heita Frammistaða með aukinni áherslu á greiningar og upplýsingagjöf, mun Þórhallur Jóhannsson áfram vera þjálfari og framkvæmdastjóri þess sviðs.

Markaðsmál & viðskiptaþróun færast yfir í Sölu & þjónustu sem framvegis nefnist Nova upplifun sem Þuríður Björg Guðnadóttir leiðir áfram sem okkar aðal klappstýra, þjálfari og framkvæmdastjóri.

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri:
Í Nova liðinu er hópur einstaklinga sem leggja sig fram við að veita góða þjónustu, hlúa að ánægju viðskiptavina og vera í forystu í tæknibreytingum og innleiðingu á nýjustu tækni í fjarskiptum. Nova er nú orðið eitt af stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækjum landsins og hefur frá upphafi lagt áherslu á framsækna fyrirtækjamenningu með framúrskarandi starfsfólki.

Með breytingunum opnast ný tækifæri bæði fyrir Magga, Benna og Nova. TAKK til þeirra og ósk um gott gengi í nýjum áskorunum.

Attachment


Skemmtana-  framkvaemdastjorn Nova 2022