Á grundvelli heimildar aðalfundar Kviku banka hf., sem haldinn var þann 31. mars sl., hefur stjórn bankans samþykkt að veita tilteknum starfsmönnum samstæðu bankans kauprétti að samtals 39.932.524 hlutum í félaginu og hefur nú verið gengið frá samningum þar að lútandi.
Fyrir kaupréttina greiða starfsmenn með frestuðum hluta kaupauka sem veittir voru m.a. vegna ársins 2021 en kaupréttirnir eru veittir í því skyni að samtvinna hagsmuni félagsins og viðkomandi starfsmanna til lengri tíma. Fyrir kaupréttina greiða starfsmenn alls 94.461.347 kr. með þegar gjaldfærðum frestuðum kaupaukum. Skilmálar kaupréttarsamninganna eru í samræmi við starfskjarastefnu og kaupaukakerfi félagsins, lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 sem og reglur Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands nr. 388/2016 um kaupaukakerfi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.
Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:
- Innlausnarverð kaupréttanna er kr. 22,495 á hlut sem jafngildir vegnu meðalgengi í viðskiptum með hluti í félaginu á Nasdaq OMX Iceland síðustu tíu viðskiptadaga fyrir undirritun kaupréttarsamninga, ávaxtað með 7,5% ársvöxtum yfir tímabilið, og skal kaupverðið m.a. leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma kaupréttanna.
- Ávinnslutími kaupréttanna er 27 mánuðir frá útgáfudegi kaupaukana. Að þeim tíma loknum er á næstu þremur mánuðum heimilt að nýta kaupréttina. Komi hins vegar til samruna þar sem félaginu er slitið eða þess að breyting verði á yfirráðum félagsins, sbr. 100. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, ávinnast allir útistandandi kaupréttir þegar við þær aðstæður.
- Almennt skulu kaupréttir falla niður ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið fyrir lok ávinnslutíma.
- Forstjóri, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjórar samstæðunnar skuldbinda sig til þess að halda, allt til starfsloka, hlutum sem að markaðsverði samsvara hagnaði eftir skatta af nýttum kauprétti þar til verðmæti hluta í eigu kaupréttarhafa samsvarar sem nemur 12 mánaða launum í tilviki forstjóra og aðstoðarforstjóra og sex mánaða launum í tilviki framkvæmdastjóra.
- Virði kaupréttanna var ákvarðað af óháðum sérfræðingi og rúmast verðmætin innan þeirra laga og reglna sem um kaupauka fjármálafyrirtækja gilda.
- Í ákveðnum tilfellum er félaginu heimilt að afturkalla kauprétti í heild eða að hluta í samræmi við reglur Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Heildarkostnaður vegna kaupréttarsamninga sem hér er tilkynnt um er áætlaður 94.461.347 kr. byggt á reiknilíkani Black-Scholes en á móti falla niður áður gjaldfærðir kaupaukar. Heildarfjöldi útgefinna kauprétta samkvæmt framangreindri útgáfu nemur um 0,84% hlutafjár í félaginu.
Upplýsingar um viðskipti stjórnenda með framangreinda kauprétti eru í viðhengi.
Viðhengi
- Hannes Frímann Hrólfsson
- Lilja Rut Jensen
- Marinó Örn Tryggvason
- Ólöf Jónsdóttir
- Ragnar Páll Dyer
- Sigurður Viðarsson
- Anna Rut Ágústsdóttir
- Ármann Þorvaldsson
- Bjarni Eyvinds Þrastarson
- Halldór Karl Högnason