Kvika banki hf.: Útboð á grænum skuldabréfum 24 nóvember


Kvika mun halda lokað útboð á nýjum flokki grænna skuldabréfa, KVIKA 25 1201 GB, fimmtudaginn 24. nóvember. Skuldabréfin verða gefin út undir grænni fjármálaumgjörð bankans og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. Skuldabréfin eru nafnvaxtabréf til þriggja ára með fljótandi vöxtum og einni höfuðstólsgreiðslu á gjalddaga þann 1. desember 2025. Bréfin bera fljótandi REIBOR 3 mánaða vexti að viðbættu álagi sem greiddir eru ársfjórðungslega.

Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. öll skuldabréfin verða seld á hæsta álagi ofan á 3 mánaða REIBOR sem tekið verður. Heildarútgáfa í flokknum verður takmörkuð við 5 ma.kr.

Áætlaður uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 1. desember 2022.

Markaðsviðskipti Kviku hafa umsjón með útboðinu og er tekið á móti tilboðum á netfangið utbod@kvika.is til klukkan 16:00 fimmtudaginn 24. nóvember.