Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 47. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 100.000 eigin hluti að kaupverði 8.800.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
21/11/22 | 10:20 | 100.000 | 88,00 | 8.800.000 | 16.834.762 |
Samtals | 100.000 | 8.800.000 | 16.834.762 |
Reitir hafa nú keypt samtals 5.834.762 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 89,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 520.989.639 kr. sem samsvarar 89,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 16.834.762 eigin hluti, eða um 2,21% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is