Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Nýr framkvæmdastjóri Eignaumsýslusviðs

Jón Kolbeinn Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Eignaumsýslusviðs Reita. Jón Kolbeinn er byggingartæknifræðingur frá háskólanum í Aarhus og tók síðan M.Sc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013. Frá 2013 hefur Jón Kolbeinn starfað hjá ISAVIA, fyrst sem verkefnastjóri fjárfestingaverkefna, síðan sem verkefnastjóri viðskiptaþróunar og frá árinu 2019 hefur Jón Kolbeinn gegnt starfi deildarstjóra verkfræði- og framkvæmdadeildar ISAVIA. Sem slíkur hefur hann komið að flóknum framkvæmdaverkefnum, aðallega á Keflavíkurflugvelli, samningum við verktaka, samskiptum við leigutaka og rekstraraðila, komið að innleiðingu á verkferlum og verklagi og hefur hann víðtæka reynslu af opinberum innkaupum.
Jón Kolbeinn mun mæta til starfa hjá Reitum í upphafi ársins 2023.