Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 49

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 49. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 100.000 eigin hluti að kaupverði 8.850.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
6/12/2210:04100.00088,508.850.00017.184.762
Samtals 100.000 8.850.00017.184.762


Reitir hafa nú keypt samtals 6.184.762 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 95,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.

Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 552.402.139 kr. sem samsvarar 94,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 17.184.762 eigin hluti, eða um 2,25% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is