Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 51 - Lok endurkaupaáætlunar

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 51. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 200.000 eigin hluti að kaupverði 18.000.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
19/12/2209:42200.00090,0018.000.00017.500.000

Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 23. september 2022, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 6.500.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 585 milljónum króna. 

Félagið hefur nú keypt samtals 6.500.000 eigin hluti fyrir samtals 580.975.226 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð. Reitir eiga nú samtals 17.500.000 eigin hluti, eða um 2,29% af heildarhlutafé félagsins.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is