Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 50. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 115.238 eigin hluti að kaupverði 10.573.086 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
14/12/22 | 15:33 | 115.238 | 91,75 | 10.573.086 | 17.300.000 |
Samtals | 115.238 | 10.573.086 | 17.300.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 6.300.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 96,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 562.975.225 kr. sem samsvarar 96,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 17.300.000 eigin hluti, eða um 2,27% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is