Islandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 17. janúar


Íslandsbanki hf. verður með lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 17. janúar 2023.

Boðnir verða út flokkarnir ISB CBF 27 og ISB CB 27.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ISB CB 23 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð á ISB CB 23 er fyrirfram ákveðið og er hreint verð 99,57.

Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.

Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 24. janúar 2023.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 17. janúar 2023.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl ir@islandsbanki.is.