Landsbankinn hf.: Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2022


  • Hagnaður Landsbankans á árinu 2022 nam 17,0 milljörðum króna eftir skatta.
  • Góð aukning var í útlánum til fyrirtækja og jukust þau um 92,0 milljarða króna sem jafngildir um 10% vexti þegar tekið hefur verið tillit til gengisáhrifa.
  • Íbúðalán jukust um 59,0 milljarða króna en það hægði á eftirspurn á 4. ársfjórðungi.
  • Arðsemi eiginfjár á fjórða ársfjórðungi 2022 var 8,2% , samanborið við 10,5% arðsemi á sama ársfjórðungi árið 2021.
  • Arðsemi ársins var 6,3%, þrátt fyrir góðan grunnrekstur. Neikvæð áhrif sem drógu úr arðsemi voru aðallega mikil lækkun á gangvirði eignarhluta bankans í Eyri Invest hf. Markmið bankans er að arðsemi eiginfjár verði að lágmarki 10%. 
  • Rekstrarkostnaður er stöðugur.
  • Landsbankinn er með ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði fjórða árið í röð, samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni. Markaðshlutdeild á einstaklingsmarkaði hefur aldrei verið hærri og mælist nú í fyrsta skipti yfir 40%.
  • Vanskil eru í sögulegu lágmarki og sl. áramót var vanskilahlutfallið 0,2%.
  • Bankinn greiddi 20,5 milljarða króna í arð árið 2022 og 14,1 milljarð króna í skatta.
  • Bankaráð hyggst leggja til við aðalfund 23. mars nk. að bankinn greiði 8,5 milljarða króna í reglulegan arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2022.
  • Bankinn gefur í dag út ítarlegar sjálfbærniupplýsingar, þ.e. tilvísunartöflu samkvæmt viðmiðum Global Reporting Initiative, skýrslu í samræmi við reglur Principles for Responsible Banking og útreikninga á kolefnisspori bankans samkvæmt aðferðafræði Principles for Carbon Accounting Financials (PCAF) fyrir árið 2021. Upplýsingarnar eru endurskoðaðar að hluta eða öllu leyti af Deloitte.
  • Útreikningar á losun vegna lánasafns bankans samkvæmt aðferðafræði PCAF fyrir árið 2021 liggja fyrir og nam losunin 280 kílótonnum af CO2 ígildum. Losun vegna eigin starfsemi bankans nam tæplega 1 kílótonni af CO2 ígildum árið 2022.
  • Pillar III áhættuskýrsla fyrir árið 2022 kemur út samhliða birtingu ársuppgjörsins.
  • Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans kemur út 16. febrúar nk.

Hagnaður Landsbankans á árinu 2022 nam 17,0 milljörðum króna eftir skatta (2021: 28,9 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 6,3% á árinu 2022 eftir skatta (2021: 10,8%).

Hreinar vaxtatekjur námu 46,5 milljörðum króna árið 2022 (2021: 39,0 milljarðar króna). Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna nam 2,7% á árinu 2022 (2021: 2,3%). Hreinar þjónustutekjur námu 10,6 milljörðum króna árið 2022 (2021: 9,5 milljarðar króna). Aðrar rekstrartekjur voru neikvæðar um 3,8 milljarða króna (2021: jákvæðar um 13,9 milljarða króna). Hreint tap af fjáreignum og fjárskuldum á gangvirði nam 7.963 milljónum króna (2021: 5.980 milljóna króna hagnaður). Þar vegur þyngst lækkun á gangvirði óskráðra eignarhluta bankans í Eyri Invest hf. sem nemur 10.500 milljónum króna á árinu (2021: 2.076 milljóna króna hækkun). Virðisbreytingar útlána voru jákvæðar um 2,5 milljarða króna á árinu 2022 (2021: 7,0 milljarðar króna).

Rekstrartekjur bankans á árinu 2022 námu 53,3 milljörðum króna (2021: 62,3 milljarðar króna).

Rekstrargjöld voru 25,9 milljarðar króna á árinu 2022 og eru óbreytt frá fyrra ári. Þar af voru laun og launatengd gjöld 14,5 milljarðar króna (2021: 14,8 milljarðar króna). Annar rekstrarkostnaður var 9,3 milljarður króna á árinu 2022 (2021: 9,1 milljarður króna).

Hagnaður fyrir skatta á árinu 2022 var 27,4 milljarðar króna (2021: 36,5 milljarðar króna). Reiknaðir skattar, þar með talið skattur á heildarskuldir fjármálafyrirtækja og sérstakur fjársýsluskattur á laun, voru 13,2 milljarðar króna árið 2022 (2021: 10,3 milljarðar króna).

Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T) á árinu 2022 var 46,8% (2021: 43,2%).

Heildareignir jukust um 57,2 milljarða króna á milli ára og námu í árslok 2022 alls 1.787 milljörðum króna. Útlán jukust um 11,3% milli ára, eða um 156,9 milljarða króna. Í árslok 2022 voru innlán frá viðskiptavinum 967,9 milljarðar króna (2021: 900,1 milljarður króna) og höfðu aukist um 67,8 milljarða króna.

Eigið fé í árslok 2022 var 279,1 milljarður króna (2021: 282,6 milljarðar króna). Á árinu 2022 greiddi Landsbankinn 14,4 milljarða króna í arð til hluthafa, ásamt sérstakri arðgreiðslu að fjárhæð 6,1 milljarður króna. Eiginfjárhlutfall í árslok 2022 var 24,7% (2021: 26,6%). Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir 20,7% heildarkröfu um eiginfjárgrunn Landsbankans.

Bankaráð Landsbankans mun leggja til við aðalfund þann 23. mars 2023 að greiddur verði arður til hluthafa sem nemur 0,36 krónum á hlut vegna rekstrarársins 2022, samtals 8,5 milljarðar króna. Arðgreiðslan samsvarar 50% af hagnaði samstæðu bankans á árinu 2022. Verði tillagan samþykkt munu arðgreiðslur Landsbankans á árunum 2013-2023 samtals nema 175,2 milljörðum króna.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:
„Grunnrekstur bankans gekk vel á krefjandi ári en lækkun á hlutabréfaeignum dregur afkomuna niður. Það er ánægjulegt að útlán til fyrirtækja jukust talsvert og það var áfram ágæt aukning í íbúðalánum þó hægt hafi á síðari hluta ársins. Viðskiptavinum bankans hélt áfram að fjölga, tekjur af fjölbreyttri starfsemi bankans jukust og rekstrarkostnaður var stöðugur. Innlán jukust töluvert og góður árangur við fjármögnun bankans á árinu 2021 gerði okkur kleift að bíða af okkur verstu sveiflurnar á fjármálamörkuðum á árinu 2022.

Það var risastór viðurkenning að Landsbankinn varð efstur banka í Íslensku ánægjuvoginni fjórða árið í röð. Það er vert að rifja upp nokkra sigra ársins sem einfalda viðskiptavinum lífið. Fyrst má nefna að sparað í appi sló algjörlega í gegn. Lausnin er einföld og býður upp á þann skemmtilega möguleika að spara saman en þar bjóðum við líka bestu kjörin okkar á óbundinn sparnað. Sparnaður í appi 35-faldaðist sem sýnir að appið er bæði mikilvæg og áhrifamikil söluleið fyrir nýjar vörur og þjónustu og að viðskiptavinir eru fljótir að nýta sér spennandi nýjungar. Aðrir góðir sigrar voru t.d. rafrænar þinglýsingar á íbúðalánum, Aukakrónur í símann og mun öruggari auðkenning við innskráningu og staðfestingu á greiðslum í netbanka og appi. Notkun á appinu jókst mikið, einkum hjá fyrirtækjum, enda er allt einfaldara og þægilegra í Landsbankappinu.

Á árinu bættust um 6.000 einstaklingar í hóp ánægðra viðskiptavina og markaðshlutdeild á einstaklingsmarkaði mælist 40,1%, hærri en nokkru sinni fyrr. Fyrirtækjum og félögum í viðskiptum fjölgaði á sama tíma um hátt í 2.000. Mikil ánægja hefur verið með áherslu okkar á að einfalda fyrirtækjum lífið með öflugum fyrirtækjabanka og appi sem mætir flestum daglegum þörfum. Það eru enn fleiri nýjungar fyrir fyrirtæki í bígerð og við hlökkum til að kynna viðskiptavinum færsluhirðingu bankans sem er að fara í loftið þessa dagana. 

Landsbankinn er umsvifamesti bankinn í útlánum til fyrirtækja með um 40% hlutdeild í fyrirtækjalánum. Það er ánægjulegt að útlán til fyrirtækja í öllum atvinnugreinum jukust. Alls nam aukningin 92 milljörðum króna, en um 80 milljörðum króna ef litið er framhjá gengisáhrifum sem jafngildir um 10% útlánavexti. Við lánuðum mikið til byggingarverkefna á árinu þótt heildarútlán til greinarinnar hafi ekki hækkað að sama skapi þar sem sala eigna hefur gengið vel og uppgreiðslur því hraðar. Okkur telst til að á síðasta ári höfum við fjármagnað um 4.300 íbúðir í 142 byggingarverkefnum. Við höfum stutt vel við íbúðauppbyggingu en undanfarið höfum við að jafnaði lánað um 36 milljarða króna til byggingarverkefna á hverju ári.

Við náðum góðum árangri á öðrum sviðum fyrirtækjaþjónustu, ekki síst við gjaldeyrismiðlun og lausafjárstýringu. Þá lauk Fyrirtækjaráðgjöf bankans mörgum vel heppnuðum verkefnum. Það er líka afrakstur margra ára markvissrar vinnu að þrátt fyrir erfitt ár á mörkuðum, var áfram vöxtur í grunntekjum Landsbréfa. Félagið hefur náð góðum árangri, reksturinn gengið vel og Landsbréf greiddu 3 milljarða króna í arð til bankans á árinu.

Þróttur í fyrirtækjaþjónustu, vel heppnuð uppbygging sjóða og aukin umsvif í eignastýringu eiga stóran þátt í því að þjónustutekjur bankans jukust um 12% á árinu.  

Landsbankinn hefur undanfarin ár fjárfest stöðugt í tæknilegum innviðum sem birtist viðskiptavinum helst í fjölda nýjunga, öruggara umhverfi og stöðugleika. Við leggjum sem fyrr mikla áherslu á öryggismál. Því miður hefur mikið borið á fjársvikatilraunum á netinu og í gegnum síma undanfarið. Umræða og fræðsla er besta vörnin og því hefur starfsfólk bankans farið víða með kynningar og fræðslu um netöryggi, bæði til einstaklinga og fyrirtækja, nú síðast í þessari viku fyrir eldri borgara á Akureyri við góðar undirtektir.

Jákvæð áhrif bankans á íslenskt samfélag eru mikil. Við erum einn umfangsmesti styrktaraðili landsins en í fyrra styrktum við um 250 einstaklinga, félög og verkefni með ýmsum hætti. Árlega birtum við mikinn fjölda af greiningum um efnahagsmál og ýmsa fjármálafræðslu. Vikubyrjun Hagfræðideildar er ómissandi á mánudögum og Hagsjárnar eru nauðsynlegar fyrir öll sem vilja taka þátt í umræðu um efnahagsmál. Það munar líka um arð- og skattgreiðslur bankans, en í fyrra greiddi bankinn 20,5 milljarða króna í arð og 14,1 milljarð króna í skatta, rúma 34,6 milljarða króna samtals.

Það hefur verið gott að fá starfsfólk bankans aftur í hús eftir Covid-19-faraldurinn en jafnframt hefur ný fjarvinnustefna með skýrum viðmiðum og tækifærum til að vinna frá fjarlægum stöðum mælst mjög vel fyrir. Einnig vildum við koma til móts við yngra fólk með því að bæta fæðingarorlofsgreiðslur, sem eru nú orðnar 80% af launum. Við viljum að starfsfólk bankans sé stolt af Landsbankanum og mæli með bankanum sem vinnustað. Það er eitt af lykilmarkmiðum bankans.

Það er mikill kraftur í starfsfólki bankans og við erum bjartsýn. Öflug þjónusta við fyrirtæki og fjárfesta ásamt hæstu markaðshlutdeild sem við höfum séð á einstaklingsmarkaði skapa tækifæri til frekari sóknar. Við mætum samkeppninni með góðu aðgengi að reyndu starfsfólki, frábæru appi og sanngjörnum kjörum. Það er Landsbanki nýrra tíma."

Fjárhagsdagatal Landsbankans

  • Aðalfundur 23. mars 2023
  • Uppgjör 1F 2023 4. maí 2023
  • Uppgjör 2F 2023 20. júlí 2023
  • Uppgjör 3F 2023 26. október 2023
  • Ársuppgjör 2022 1. febrúar 2024

 

Nánari upplýsingar veita:                

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbanki.is

 

 

 

Viðhengi



Attachments

Landsbankinn hf. Pillar III risk report - 31.12.2022 Landsbankinn_ársreikningur samstæðu_31.12.2022 Uppgjorskynning_Landsbankinn_31.12.2022 Fretttatilkynning_Landsbankinn_31.12.2022