Með vísan í tilkynningu Kviku þann 2. febrúar 2023 hefur Kviku í dag borist svar frá stjórn Íslandsbanka hf. þar sem samþykkt er að hefja viðræður um samruna félaganna líkt og lagt er upp með í bréfi Kviku.
Hafa því stjórnir bæði Kviku og Íslandsbanka formlega samþykkt að hefja viðræður um sameiningu félaganna og er búist við að þær muni fara fram á næstu vikum.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.