Kvika banki hf.: Moody‘s tekur til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku


Moody's Investors Service („Moody‘s“) tilkynnti í dag að formlega hefði verið tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku banka hf. („Kvika“) í kjölfar þess að ákveðið hefur verið að hefja viðræður um samruna Kviku og Íslandsbanka hf.  

Á meðan á skoðunartíma stendur gæti lánshæfismat Kviku verið hækkað, verði af samruna við Íslandsbanka hf., þá er einnig talið ólíklegt að lánshæfismat Kviku verði lækkað á tímabilinu. Verði ekki af samruna félaganna mun Moody‘s staðfesta núverandi lánshæfismat Kviku, með fyrirvara um að félagið haldi áfram að sýna fram á sterka rekstrarniðurstöðu.

Til skoðunar er að hækka Baa1 langtíma og Prime-2 skammtíma lánshæfismat Kviku á innlánum og Baa2 langtíma og Prime-2 skammtíma lánshæfismat Kviku sem útgefanda óveðtryggðra skuldabréfa. Moody‘s horfir einnig til hækkunar á ýmsum undirþáttum lánshæfismatsins. Horfur lánshæfiseinkunna Kviku vegna innlána og sem útgefanda voru áður metnar stöðugar.

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.