Reginn hf.: – Framboð til stjórnar á aðalfundi 7. mars 2023


Aðalfundur Regins hf. verður haldinn þriðjudaginn 7. mars 2023 kl. 16:00 í fundarsalnum Gullfoss A, á Fosshóteli Reykjavík, Þórunnartúni 1, 105 Reykjavík.  

Framboðsfrestur til stjórnar og tilnefningarnefndar Regins hf. rann út þann 28. febrúar 2023.

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Í framboði til aðalstjórnar eru:

Benedikt Olgeirsson

Bryndís Hrafnkelsdóttir

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Heiðrún Emilía Jónsdóttir

Óskar Jósefsson

Tómas Kristjánsson

Mat stjórnar er að öll framboð séu gild sbr. 63. gr.a. hlutafélagalaga nr. 2/1995.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar eru í viðhengi auk skýrslu tilnefningarnefndar.

Engar breytingar hafa orðið á dagskrá og tillögum sem birtar voru 13. febrúar sl.

Önnur fundargögn tengd aðalfundi, umboðsform, skýrsla tilnefningarnefndar o.fl. má nálgast á vef félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.

Kópavogur 1. mars 2023

Stjórn Regins hf.

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - Frambjóðendur til stjórnar 2023 Reginn hf. - Skýrsla tilnefningarnefndar - 13022023