Eimskip: Lækkun hlutafjár


Vísað er til fréttatilkynningar frá 9. mars sl. um niðurstöður aðalfundar Eimskipafélags Íslands hf. hvar samþykktar voru tvær tillögur stjórnar félagsins varðandi lækkun hlutafjár, um samtals kr. 5.200.000 að nafnverði þannig að hlutafé verði kr. 167.850.000 að nafnverði eftir lækkunina. Hlutafé verður annars vegar lækkað með lækkun eigin hluta og hins vegar með lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa.

Fyrirtækjaskrá Skattsins hefur nú samþykkt að veita félaginu undanþágu frá innköllunarskyldu vegna þessara lækkana og hafa lögboðnar forsendur fyrir lækkun hlutafjár nú verið uppfylltar, sbr. sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Lækkun eigin hluta

Eigin hlutir félagsins verða lækkaðir um kr. 1.700.000, og verða því eftir lækkun kr. 1.761.307. Hlutafé félagsins lækkar því úr kr. 173.050.000 í kr. 171.350.000 að nafnverði vegna þessarar lækkunar. Fyrir lækkun voru eigin hlutir 2,0% heildarhlutafjár, en eftir lækkunina eru eigin hlutir 1,05% heildarhlutafjár. Beiðni um lækkun hefur verið send Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd þriðjudaginn 25. apríl nk. Einnig er vísað til markaðstilkynningar sem Nasdaq Iceland mun gefa út um lækkunina.

Lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa

Þessi lækkun á hlutafé félagsins nemur kr. 3.500.000 að nafnverði með greiðslu sem nemur kr. 1.925.000.000. Fjárhæðin verður greidd út til hluthafa félagsins þann 26. apríl 2023, hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra m.v. skráningu í hlutaskrá í lok dags. 25. apríl 2023. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð mun verða færð til lækkunar á yfirverðsreikningi, eða kr. 1.921.500.000

Síðasti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár verður því föstudagurinn 21. apríl 2023. Framkvæmd þessara hlutafjárlækkunar verður með eftirfarandi hætti:

  • X-dagur 24. apríl 2023
  • Viðmiðundagur 25. apríl 2023
  • Lækkunardagur 26. apríl 2023
  • Greiðsludagur 26. apríl 2023