Kvika banki hf.: Aðalfundur 30. mars – framboð til stjórnarsetu og breyttar tillögur stjórnar


Framboðsfrestur til stjórnar Kviku banka hf. rann út þann 25. mars 2022. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður kl. 16:00 þann 30. mars á Grand Hótel, Háteigi, Sigtúni 28, 105 Reykjavík, auk þess sem boðið er upp á fullgilda rafræna þátttöku í gegnum Lumi AGM:

Í framboði til stjórnar:

  • Sigurður Hannesson
  • Guðmundur Þórðarson
  • Guðjón Reynisson
  • Helga Kristín Auðunsdóttir
  • Ingunn Svala Leifsdóttir

Í framboði sem varamenn í stjórn:

  • Helga Jóhanna Oddsdóttir
  • Sigurgeir Guðlaugsson

Það er mat stjórnar að öll framboð séu gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Þar sem fleiri framboð bárust ekki til stjórnar og varastjórnar eru frambjóðendur sjálfkjörnir.

Athygli er vakin á því að Kviku hefur borist breytingartillaga frá Gildi lífeyrissjóði vegna breytinga á texta greinar 7.2 í starfskjarastefnu bankans annars vegar og tillögu um breytingu á grein 3.5 í samþykktum Kviku vegna skráningarfrests hins vegar. Breytingartillögur Gildis ásamt greinargerðum liggja fyrir á heimasíðu félagsins og má nálgast hér. Stjórn Kviku hefur tekið að fullu tillit til framkominna tillagna um breytingar og liggja endanlegar tillögur stjórnar fyrir hér.

Til viðbótar er vakin athygli á því að hluthafar eða umboðsmenn þeirra sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig hér eigi síðar en kl. 16.00 þann 29. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum skilríkjum og umboð, ef við á.  Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM, hvort sem hluthafar mæta til fundarins á Grand Hótel eða taka þátt með rafrænum hætti.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur og aðrar upplýsingar um framkvæmd aðalfundar eru aðgengilegar hér.