Klappir Grænar Lausnir hf.: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2023


Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður á Café Atlanta, Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi, fimmtudaginn 27. apríl 2023 kl. 15:00.

Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði bréflega eða að láta umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd.

Atkvæði sem greidd eru bréflega skulu hafa borist á netfangið investors@klappir.com eigi síðar en kl. 14:00 á fundardegi 27. apríl 2023.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að skrá sig á heimasíðu félagsins www.klappir.com. Mælst er til að skráning berist tímanlega. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboð má leggja fram á fundinum eða senda á netfangið investors@klappir.com fyrir fundinn.

Ekki hafa verið gerðar breytingar frá áður birtri dagskrá og tillögum sem lagðar verða fyrir fundinn. Öll gögn vegna aðalfundar hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins www.klappir.com/investors.  

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Ásta Ólafsdóttir fjármálastjóri félagsins með tölvupósti á netfangið olof@klappir.com.