Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár


Á aðalfundi Kviku sem haldinn var þann 30. mars 2023 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 147.871.265 kr. að nafnvirði, eða sem nemur 147.871.265 hlutum, úr 4.928.896.980 kr. í 4.781.025.715 kr. að nafnvirði, með niðurfellingu eigin hluta félagsins að framangreindri fjárhæð. Um er að ræða hluti sem voru keyptir samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun á árinu 2022. 

Hlutafjárlækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.781.025.715. Eftir lækkun á bankinn enga eigin hluti.