Kvika banki hf.: Birting þriggja mánaða uppgjörs fimmtudaginn 11. maí


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2023 á stjórnarfundi fimmtudaginn 11. maí og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 11. maí, kl. 16:15 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Á fundinum mun Marinó Tryggvason forstjóri Kviku fara yfir uppgjör félagsins og helstu þróun á liðnum mánuðum. Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is.

Fjárfestakynningin sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.