Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2023


Kynningarfundur 17. maí 2023

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða þriðjudaginn 16. maí.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 17. maí nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.

Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri í síma 774-0604 eða á investors@eimskip.com.