Síminn hf. - Kaupréttaráætlun starfsfólks


Á aðalfundi Símans hf. þann 10. mars 2022 var stjórn Símans veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, og gera kaupréttarsamninga við starfsfólk félagsins um kaup á hlutum í félaginu. Nú hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum við starfsfólk í samræmi við samþykkta kaupréttaáætlun. Kaupréttur samkvæmt áætluninni nær til allra fastráðinna starfsmanna Símans og dótturfélaga og er markmið áætlunarinnar að samtvinna hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni félagsins.

Samkvæmt áætluninni öðlast hver kaupréttarhafi rétt til að kaupa hluti í Símanum hf. fyrir að hámarki 1.500.000 krónur einu sinni á ári í þrjú ár, eftir birtingu hálfsársuppgjörs fyrir árin 2024, 2025 og 2026. Kaupverð hluta er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins síðustu tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 17. maí 2023, eða kr. 10,98 hver hlutur.

Alls gerðu 226 starfsmenn kaupréttarsamning sem ná til allt að 30.874.312 hluta á ári miðað við 100% nýtingu kauprétta.

Kaupréttaráætlun þessi var staðfest af Skattinum þann 12. maí 2023 og er í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Kaupréttaráætlun Símans hf. er meðfylgjandi.

Viðhengi



Attachments

Síminn hf. - Samþykkt kaupréttaráætlun