Reginn hf.: Útboð skuldabréfa


Reginn hf. (Nasdaq: REGINN) heldur útboð á skuldabréfum, á morgun, fimmtudaginn 25. maí. Boðin verða til sölu skuldabréf í tveimur nýjum skuldabréfaflokkum REGINN100740 GB og REGINN25 GB.

REGINN100740 GB er grænn, verðtryggður flokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 10. júlí 2040 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (annuity) fram til lokagjalddaga þegar allar eftirstöðvar höfuðstólsins greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á þriggja mánaða fresti, þ.e. í janúar, apríl, júlí og október ár hvert. Nafnvextir bréfsins eru 3,553%.

REGINN25 GB er grænn, óverðtryggður flokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 1. júlí 2025 og greiðist allur höfuðstóll bréfsins á lokagjalddaga. Greiðslur vaxta fara fram á þriggja mánaða fresti, þ.e. í janúar, apríl, júlí og október ár hvert. Nafnvextir bréfsins eru 9,735%.

Útboðið fer fram á föstum kjörum og verður REGINN100740 GB boðið til sölu á ávöxtunarkröfunni 3,60% og REGINN25 GB á ávöxtunarkröfunni 10,10%.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendum REGINN23 GB býðst að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í framangreindu útboði. Mun félagið kaupa til baka skuldabréf í flokknum REGINN23 GB á ávöxtunarkröfunni 7,0%.

Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Við úthlutun áskilur félagið sér enn fremur rétt til þess að láta þá sem taka þátt í skiptiútboði njóta forgangs.

Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 1. júní næstkomandi. Óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á  Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í kjölfarið. 

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Nálgast má grunnlýsingu, endanlega skilmála og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka á vefsíðu félagsins á slóðinni https://www.reginn.is/fjarfestavefur/fjarmognun/skuldabrefautgafa/. Tilkynningar sem félagið birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar:

Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is  - S: 512 8900 / 844 4776