Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 1. júní 2023


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 1. júní 2023 og hefst hann kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 27. maí sl. Alls bárust 5 framboð til stjórnar félagsins og voru þau öll frá núverandi stjórnarmönnum.

Eftirtaldir einstaklingar hafa því gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

  1. Davíð Harðarson (f. 1976), fjármálastjóri Travel Connect hf.
  2. Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), framkvæmdastjóri Kaldbaks ehf.
  3. Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972), lögmaður hjá LMG lögmönnum
  4. Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969), framkvæmdastjóri og meðeigandi Vinnvinn ehf.
  5. Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960), stjórnarformaður Nova hf. og varamaður í bankaráði Landsbankans hf.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem birt var 10. maí 2023 og er einnig hér meðfylgjandi.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því sjálfkjörið. Er það mat stjórnar að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu, stjórnendum og stórum hluthöfum þess og að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. í hlutafélagalögum nr. 2/1995.

Stjórn Haga hf.

Viðhengi



Attachments

Skýrsla tilnefningarnefndar Haga 2023_undirrituð