Reginn hf.: Opinbert tilboðsyfirlit vegna valfrjáls tilboðs Regins hf. í hlutabréf Eikar fasteignafélags hf.


Reginn hf. birti auglýsingu í fjölmiðlum þann 6. júlí 2023, þar sem boðað var að tilboðsyfirlit vegna valfrjáls yfirtökutilboðs Regins hf. til hluthafa Eikar fasteignafélags hf. yrði birt mánudaginn 10. júlí 2023.

Tilboðsyfirlitið ásamt kynningu á valfrjálsa tilboðinu má finna í viðhengi. 

Tilboðsyfirlitið og önnur tengd skjöl verða einnig aðgengileg á heimasíðu umsjónaraðila valfrjálsa tilboðsins, Íslandsbanka, á vefslóðinni https://islandsbanki.is/, og heimasíðu Regins hf., https://www.reginn.is/. Þá munu hluthafar sem hyggjast taka tilboðinu geta samþykkt það rafrænt á vef valfrjálsa tilboðsins á vefslóðinni https://isb.ipo.is/eiktilbod.

Nánari upplýsingar:

Halldór Benjamín Þorbergsson – Forstjóri Regins hf. – hb@reginn.is – s. 821-0001

Viðhengi



Attachments

Tilboðsyfirlit Kynning á valfrjálsu tilboði