Festi hf.: Festi undirritar samning um kaup á öllu hlutafé í Lyfju hf.


Festi hf. og eigendur Lyfju, SID ehf., undirrituðu í dag, 13 júlí 2023, samning um kaup Festi á öllu hlutafé í Lyfju hf. Kaupsamningurinn byggir á samkomulagi sem gert var 17. mars 2023 og tók til allra helstu skilmála viðskiptanna.

Samkvæmt kaupsamningnum er heildarvirði Lyfju metið á 7,8 milljarða króna en endanlegt heildarvirði og kaupverð mun ráðast af skuldastöðu Lyfju við afhendingu ásamt gengi hlutabréfa í Festi á þeim tíma. Áætlanir Lyfju fyrir árið 2023 gera ráð fyrir að hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA), án IFRS16 áhrifa, nemi 1.044 milljónum króna. Samkvæmt kaupsamningnum þá verður kaupverðið greitt með afhendingu 10 milljón hluta í Festi og greiðslu 6 milljarða króna með handbæru fé að frádregnum nettó vaxtaberandi skuldum Lyfju á efndadegi. 

Viðskiptin eru m.a. háð skilyrðum um samþykki hluthafafundar Festi, sem boðað verður til á næstu vikum, og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gangi viðskiptin eftir er gert ráð fyrir að þeim ljúki á fyrsta ársfjórðungi 2024.

„Við erum afar ánægð með þessi kaup. Lyfja er vel rekið félag með reynslumikið og hæft starfsfólk sem stendur að baki þessa sterka og rótgróna vörumerkis. Mikil tækifæri felast í samþættingu þjónustu þvert á félögin innan Festi sem og framboði breiðara úrvals nauðsynjavara á hagstæðu verði fyrir viðskiptavini okkar um land allt. Samhljómur fyrirtækjanna er skýr m.a. hvað varðar fyrirbyggjandi heilsuvernd og aukin þægindi við innkaup,“ segir Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi.

 „Ég hef átt samleið með apótekum Lyfju í bráðum 30 ár, fyrst sem lyfjafræðingur og stofnandi og síðar sem fjárfestir og stjórnarformaður. Ég er afar stoltur af því sem starfsfólk okkar hefur áorkað á síðustu tæpu fimm árum og hlakka til að fylgjast með Lyfju dafna til framtíðar innan samstæðu Festi. Félagið hefur byggt upp ólík verslunarfélög með hugmyndafræði sem viðskiptavinum líkar og starfsfólkið er stolt af. Ég tel að Lyfja eigi vel heima innan þessarar fjölskyldu,“ segir Ingi Guðjónsson, stjórnarformaður Lyfju og einn eigenda SID ehf.

Festi sérhæfir sig í rekstri smásölufyrirtækja og rekur meðal annars Krónuna, N1 og ELKO ásamt því að eiga og reka alls 87 fasteignir sem telja alls um 95.000 fermetrar. Einnig rekur félagið tvö vöruhús undir nafni Bakkans vöruhótels sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu. Hjá Festi og dótturfélögum starfa um 2.100 manns.  Heildarvelta Festi var 131 milljarðar króna árið 2022.

Lyfja sérhæfir sig í rekstri apóteka auk heild- og smásölu með heilsutengdar vörur. Félagið starfrækir í dag 45 apótek og útibú allan hringinn í kringum landið auk vefverslunar og apps.  Hjá Lyfju og dótturfélögum starfa um 380 manns.  Heildarvelta Lyfju var 15 milljarðar króna árið 2022.

Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri (asta@festi.is).