Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2023


Kynningarfundur 16. ágúst 2023

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 15. ágúst 2023.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. ágúst nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.

Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com