IS Kredit SPV 21 hs. - Árshlutareikningur 2023


IS Kredit SPV 21  hs. er sérhæfður sjóður í rekstri Íslandssjóða hf. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna eign félagsins Grunnstoð ehf. sem er dótturfélag Háskólans í Reykjavík og rekur fasteignina Menntaveg 1 þar sem starfsemi háskólans fer fram. Sjóðurinn gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá Nasdaq Iceland hf. á árinu 2022. Skuldabréfin flokkast sem rauð skuldabréf og falla undir félagslegan fjármögnunarramma Háskólans í Reykjavík sem er vottaður af alþjóðlega vottunarfyrirtækinu S&P Global Ratings. Í félagslegum fjármögnunarramma er útgáfa skuldabréfa og annarra fjármálagerninga tengd félagslegum markmiðum. Fjármunir sem aflað er með þessum hætti eru notaðir til að fjármagna eignir og verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif, í þessu tilfelli háskólamenntun. Meðfylgjandi er árshlutareikningur sjóðsins fyrir árið 2023.

  • Rekstrarniðurstaða sjóðsins á tímabilinu janúar til júní 2023 var 0 kr. og eignir sjóðsins námu samtals um 13,6 milljörðum kr. í lok júní 2023.
  • Ársreikningurinn var kannaður af Ernst & Young ehf. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2023 og breytingu á hreinni eign, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Nánari upplýsingar veitir sjóðsstjóri sjóðsins, Gísli Elvar Halldórsson,  í síma 440-4950.

Viðhengi



Attachments

2023-08-22 Árshlutauppgjör IS 30 6 2023 - IS Kredit SPV_undirritað