Landsbankinn hf.: Skilyrt endurkaupatilboð


Landsbankinn hf. tilkynnti í dag um endurkaupatilboð til eigenda skuldabréfa í flokki EUR 300.000.000 0,5% á gjalddaga árið 2024 (ISIN: XS2121467497) þar sem bankinn býðst til að kaupa skuldabréfin til baka gegn greiðslu reiðufjár. Tilboðið byggir á skilmálum og skilyrðum endurkaupatilboðs (e. tender offer memorandum) dagsettu 4. september 2023, þar á meðal niðurstöðu bankans í fyrirhuguðu skuldabréfaútboði. Endurkaupatilboðið miðast við fast verð 97,20.

Nánari upplýsingar um endurkaupatilboðið má finna í tilkynningu á Euronext Dublin þar sem skuldabréfin eru skráð. Að tilteknum skilyrðum uppfylltum má nálgast skilmála endurkaupatilboðs hjá umsýsluaðila endurkaupanna, Kroll Issuer Services Limited, landsbankinn@is.kroll.com.

Umsjónaraðilar eru BofA Securities, Citi, Deutsche Bank og Morgan Stanley.


GlobeNewswire

Recommended Reading