Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrstu sex mánaða ársins 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 7. september nk. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 8. september nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.